MÍ 15-22 ára í frjálsíþróttum innanhúss

Þóranna Ósk vann gullverðlaun fjórðu helgina í röð.
Þóranna Ósk vann gullverðlaun fjórðu helgina í röð.

 

Helgina 25.-26. febrúar, fjórðu helgina í röð, fór fram stórmót í frjálsíþróttum í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Fyrst voru það Reykjavíkurleikarnir, síðan Stórmót ÍR, MÍ-aðalhluti, og nú var það Meistaramót Íslands fyrir 15-22 ára. Á því móti er keppt í aldursflokkunum 15 ára, 16-17 ára, 18-19 ára og 20-22 ára.

Tólf Skagfirðingar mættu þar til leiks, það voru: Aníta Ýr Atladóttir (15), Guðný Rúna Vésteinsdóttir (15), Andri Snær Tryggvason (16), Dalmar Snær Marinósson (16), Kristinn Freyr Briem Pálsson (18), Rúnar Ingi Stefánsson (18), Vésteinn Karl Vésteinsson (18), Hrafnhildur Gunnarsdóttir (19), Hákon Ingi Stefánsson (20), Sveinbjörn Óli Svavarsson (20), Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir (21) og Ísak Óli Traustason (22).

Skagfirðingarnir stóðu sig vel, unnu ein gullverðlaun, fimm bronsverðlaun, og flestir bættu sinn fyrri árangur, svo sjá má að liðið tekur góðum framförum um þessar mundir. Til hamingju öll !

Þau sem unnu til verðlauna voru:

Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir (20-22): Gull í 60m grind. 9,32sek (pm), og brons í hástökki 1,62m.

Bronsverðlaun hlutu einnig:

Aníta Ýr Atladóttir (15): Kúluvarp 10,48m (pm).

Ísak Óli Traustason (20-22): Stangarstökk 3,60m (pm).

Rúnar Ingi Stefánsson (18-19): Kúluvarp 12,20m.

Sveinbjörn Óli Svavarsson (20-22): 60m hlaup 7,31sek.

Hægt er hér að sjá keppendalista og úrslit.