Komdu og vertu með!

Bikarkeppni FRÍ 2018
Bikarkeppni FRÍ 2018

Frjálsíþróttadeild Tindastóls býður upp á frjálsíþróttaæfingar fyrir alla aldurshópa.

Haustæfingar hefjast 1. okt og standa til 31. janúar 2019.

Í frjálsum íþróttum er lögð áhersla á að þjálfa bæði snerpu og úthald. Frjálsar geta því hentað vel með öðrum íþróttum.

Æfingar, æfingatímar og þjálfarar

Í yngsta hópunum 6-9 ára er lögð áhersla á leik og fjölbreyttar æfingar sem veita góðan grunn fyrir frekari frjálsíþróttaþjálfun eða iðkun annarra íþrótta.

  • Þriðjudagar kl.13:15 - 14:00
  • Föstudagar kl. 14:00 - 14:45
  • Þjálfari Daníel Þórarinsson 

Í eldri hópum 10-13 ára verður sérhæfingin meiri, farið er að æfa markvisst einstakar greinar innan frjálsra íþrótta, þ.e. hlaup, köst og stökk.

  • Mánudagar kl.16:10 - 17:50
  • Miðvikudagar kl. 17:50 - 19:30
  • Þjálfari Gestur Sigurjónsson

Í unglingahópum 14-18 ára verður sérhæfingin enn meiri og við 19+ ára verður sérhæfingin ennþá meiri en þá hafa flestir valið sér ákveðna grein eða greinar innan frjálsíþrótta.

  • Mánudagar kl. 18:30 - 21:00 Íþróttavöllur / Reiðhöll / Þreksalur
  • Þriðjudagar kl. 17:00 - 18:30 Varmahlíð
  • Miðvikudagar kl. 17:50 - 19:30 Íþróttavöllur / Íþróttahús
  • Fimmtudagar kl. 18:00 - 19:30 Íþróttavöllur / Þreksalur
  • Föstudagar kl. 18:15 - 20:00 Íþróttavöllur / Reiðhöll
  • Þjálfari Sigurður Arnar Björnsson

Allir mega koma og prófa áður en gengið er frá skráningu. Skráningar fara fram rafrænt https://umss.felog.is

Nýjir iðkendur er sérstaklega boðnir velkomnir.