Margrét formaður frjálsíþróttadeildar

Thelma ritari, Margrét formaður og Kolbrún gjaldkeri.
Thelma ritari, Margrét formaður og Kolbrún gjaldkeri.

 

Aðalfundur Frjálsíþróttadeildar Tindastóls var haldinn 26. apríl.  Formannaskipti urðu á fundinum, Sigurjón Leifsson, sem gegnt hafði formennsku frá 2010, baðst undan endurkjöri, en í hans stað var Margrét Arnardóttir kjörin formaður og er hún boðin velkomin í embættið.  Sigurjóni eru þökkuð góð störf fyrir deildina.  Þær Kolbrún Þórðardóttir og Thelma Knútsdóttir voru einnig kjörnar nú í stjórn deildarinnar.  Guðrún Ottósdóttir og Hafdís Ólafsdóttir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa, og eru þeim færðar þakkir fyrir góð störf.