ULM 2013

 

16. Unglingalandsmót UMFÍ  er haldið um verslunarmannahelgina á Höfn í Hornafirði. Mótið er vímulaus skemmtun ungmenna með skemmtilegri íþróttakeppni, sem hefur fyrir löngu sannað sig sem vinsælasta útihátíðin fyrir unglinga um verslunarmannahelgina.

Í frjálsíþróttakeppni mótsins nú eru skráðir 516 keppendur, þar af 30 Skagfirðingar, og við getum fylgst með þeim hér á síðunni.

Þess má geta, að á ULM2009 á Sauðárkróki voru 696 keppendur í frjálsíþróttakeppninni, og hafa aldrei verið fleiri á ULM. 

Á næsta ári kemur ULM svo aftur á Krókinn !

ÚRSLIT frálsíþróttakeppninnar á Höfn eru HÉR !