MÍ 11-14 ára í frjálsíþróttum


Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum, fyrir 11-14 ára, fór fram á Selfossi helgina 27.- 28. júní. Um 240 keppendur voru skráðir til leiks, þar af 5 frá UMSS. 
Stefanía Hermannsdóttir náði bestum árangri Skagfirðinga á mótinu, en hún varð í 2. sæti í spjótkasti í flokki 12 ára stúlkna, kastaði 24,13 m.
Heimamenn í HSK/Selfossi sigruðu með yfirburðum í stigakeppni mótsins, UFA varð í 2. sæti og FH í 3. sæti.