Frábær árangur Jóhanns Björns


Vormót UFA var haldið á Akureyri laugardaginn 31. maí.

Í 100 m hlaupi karla sigraði Jóhann Björn Sigurbjörnsson UMSS á 11,10 sek.  Í 2. sæti varð Kolbeinn Höður Gunnarsson UFA á 11,23 sek.


Í 200 m hlaupi karla sigraði Jóhann Björn einnig, hljóp á 22,12 sek, sem er hans besti tími á vegalengdinni utanhúss, átti 22,65 sek frá 2012.  Í 2. sæti varð Kolbeinn Höður á 22,25 sek og Daníel Þórarinsson UMSS í 3. sæti á 23,00 sek sem er hans besti tími. Nokkur mótvindur var í báðum hlaupunum.   


Fleiri Skagfirðingar kepptu á mótinu og stóðu sig vel.


ÚRSLIT.