Ulf Örth nýr aðstoðarþjálfari meistaraflokka

Sæþór Már framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar og Ulf Örth við undirritun samnings.
Sæþór Már framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar og Ulf Örth við undirritun samnings.

Ulf Örth hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokka karla og kvenna hjá Knattspyrnudeild Tindastóls út þetta tímabil.

Ulf er 64 ára Svíi og hefur unnið við þjálfun í yfir 20 ár. Hann er með UEFA-B þjálfaragráðu og hefur starfað í akademíum sænsku liðanna Västra Frölunda IF, Näsets SK og Örgryte IS sem þjálfari, aðstoðarþjálfari og einnig sem scout hjá Örgryte IS.

Hann þekkir vel til Donna aðalþjálfara liðanna en þeir störfuðu saman hjá Örgryte IS. Einnig þekkir hann vel til Antons og Oskars, leikmanna karlaliðsins en hann ku vera faðir þeirra.

Eijlert Björkmann starfaði áður sem aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokkunum báðum en hann lét af störfum í lok júní.

Við bjóðum Ulf Örth velkominn til starfa.