Anton og Oskar Örth til liðs við Stólanna

Knattspyrnudeild Tindastóls hefur samið við sænsku tvíburana Anton og Oskar Örth um að leika með liðinu í sumar.

Þeir eru fæddir árið 1995 og hafa æft með liðinu frá því í byrjun febrúar. 

Að sögn Donna eru Oskar og Anton stórir, sterkir og vel skólaðir leikmenn. Þeir eru mjög fjölhæfir og geta leyst margar stöður á vellinum, þó aðallega á varnarhelmingnum.

"Þetta eru toppstrákar sem komu hingað að eigin frumkvæði því þeir vildu kynnast einhverju nýju og langar að upplifa Ísland. Þeir voru spenntir fyrir náttúrunni, menningunni og auðvitað fótboltanum. Þeir hafa staðið sig mjög vel á æfingum og smellpassað inn í okkar flotta hóp. Algerir öðlingsdrengir sem við bjóðum hjartanlega velkomna til okkar," segir Donni um sænsku töffarana.