Góður sigur gegn Leiknismönnum

Tindastóll tók á móti Leikni á Sauðárkróksvelli en þetta var fyrsti leikur seinni umferðar.  Fyrri viðureign þessara liða endaði með 1 – 1 jafntefli á gervigrasvellinum í Breiðholtinu.

 

Aðstæður voru ljómandi góðar á Króknum til að leika fótbolta, andvari, þurrt og fínn hiti.

 

Leikurinn byrjaði kröftuglega og það var ljóst að bæði liðin ætluðu að sækja þrjú stig.  Fyrsta mark leiksins kom strax eftir 4 mínútur þegar Sebastian Furness markvörður Tindastóls náði ekki að hreinsa boltann frá marki.  Boltinn hafnaði hjá Kristján Páli sem setti boltann í fjærhornið.  Þetta var fyrsti leikur hans að nýju með Leiknismönnum eftir stutta dvöl hjá Fylki.

 

Tindastólsmenn voru fljótir að svara þegar Atli Arnarson setti boltann fyrir eftir góða hornspyrnu þar sem þeir félagar Björn Anton og Edvard Börkur í sameiningu settu boltann í netið.  Báðir leikmennirnir lágu óvígir eftir,  sauma þurfti spor í höfuðið á Birni Antoni og Edvard Börkur var fluttur upp á sjúkrahús til aðhlynningar.

 

Liðin skiptust á að sækja og mörg marktækifæri litu dagsins ljós.  Atli Arnarson, leikmaður Tindastóls átti gott skot í þverslána en á 36. mínútu fékk Ólafur Hrannar boltann inn í teig og setti hann örugglega fram hjá Sebastian í marki Tindastóls og kom gestunum yfir 1 – 2. 

 

Aftur voru Tindastólsmenn fljótir að svara fyrir sig og það mark kom eftir gott spil þeirra.  Það var vinstri bakvörðurinn Ingvi Hrannar Ómarsson sem kláraði sóknina vel og setti boltann í markið hjá Leiknismönnum og staðan orðin 2 - 2.   Þannig var staðan þegar dómari leiksins Sigurður Óli Þórleifsson flautaði til hálfleiks.

 

Tindastólsmenn mættu mun ákveðnari í seinni hálfleik og áttu mörg hættuleg færi.  Elvar Páll skoraði gott skallamark sem var dæmt af á einhvern óskiljanlegan hátt þegar markvörður Leiknismanna, Eyjólfur Tómasson stökk á  Elvar en fékk dæmda aukaspyrnu á Elvar Pál.  Elvar Páll var ekki sáttur við þetta sem og allir Tindastólsmenn og stuttu síðar afgreiddi hann boltann í mark Leiknismanna eftir að hafa fengið góða sendingu í gegnum vörn þeirra.  Staðan orðin 3 – 2 fyrir heimamenn.  Síðasta hálftímann voru Leiknismenn meira með boltann en Tindastóll varðist vel.

 

Það var síðan á 88. mínútu að Tindastóll vann boltann framalega á vellinum og Chris Tsonis setti boltann í stöngina og í netið.  Staðan orðin vænleg 4 – 2 fyrir Tindastól.

 

Vítaspyrna var síðan dæmd á leikmann Tindastóls á 90. mínútu og úr henni skoraði Hilmar Árni.   Eftir þetta héldu Tindastólsmenn boltanum vel og lönduðu góðum sigri og þremur stigum.

 

Tindastóll er nú kominn með 14 stig en Leiknismenn eru áfram með 16 stig.