Stephen Walmsley ráðinn þjálfari meistaraflokks karla

Knattspyrnudeildin hefur gengið frá ráðningu Stephen Walmsley sem þjálfara meistaraflokks karla. Stephen mun vera spilandi þjálfari hjáliðinu en með honum verður Haukur Skúlason sem þjálfaði liðið í fyrra ásamt Stefáni Arnari. Á síðasta tímabili var Stephen leikmaður liðsins auk þess að þjálfa yngri flokka félagsins og var mikil ánægja með hans störf. Í lok tímabils var Stephen síðan kosinn besti leikmaður meistaraflokks karla. 

Stjórn knattspyrnudeildar býður Stephen velkominn til starfa.