María Dögg á úrtaksæfingar

María Dögg Jóhannesdóttir, leikmaður 3. flokks kvenna var í dag valin í úrtakshóp 16 ára landsliðs Íslands. Jörundur Áki þjálfari liðsins valdi í dag 29 leikmenn sem munu æfa í Reykjavík 16. og 17. júní. Í kjölfarið verður síðan valinn hópur til þess að spila á Norðurlandamóti u-16 kvenna í Finnlandi 29. júní - 7. júlí

Við óskum Maríu til hamingju með þetta.