Haukur ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks karla

Knattspyrnudeild Tindastóls hefur ráðið Hauk Skúlason sem aðalþjálfara meistaraflokks karla. Honum til aðstoðar verður Konráð Sigurðsson sem mun vera spilandi aðstoðarþjálfari. Þeir Haukur og Konráð hafa stýrt æfingum liðsins það sem af er undirbúningstímabilinu og munu leiða liðið í baráttunni í 3.deildinni í sumar.