fyrirlestur um næringu íþróttafólks

Föstudaginn 3. febrúar verður haldinn fyrirlestur um næringu íþróttafólks í húsi frítímans. Agnes Þóra Árnadóttir næringarfræðingur mun þá koma og vera með erindi þar sem farið verður yfir næringarþarfir íþróttafólks og hvernig hægt er að nota hollt mataræði til þess að ná sínum markmiðum. 

fyrirlestrarnir verða 2 

18:30-19:30 fyrir krakka í 5-8 bekk

19:45-20:45 fyrir iðkendur í 9. bekk og uppúr.

Agnes Þóra hefur haldið fyrirlestra fyrir yngri landslið hjá KSÍ undanfarin ár og einnig hjá félagsliðum. Fyrirlestrarnir eru opnir fyrir alla iðkendur Tindastóls og hvetjum við fólk til að fjölmenna og nýta sér þetta. Foreldrar yngri iðkenda eru sérstaklega hvattir til að mæta. 

Fyrirlestrarnir verða í húsi frítiímans og er aðgangur ókeypis