Yfirlýsing frá stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls:

Yfirlýsing frá stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls:

 

Undanfarnar vikur hefur stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls skoðað allar hliðar þess að halda liðinu áfram í 1.deild eða hefja leik í 4.deild.   Reksturinn hefur verið þungur og ljóst að ekki yrði haldið áfram á sömu braut, við óbreyttar aðstæður. Tindastóll hefur síðustu tvö ár leikið í 1.deild og haldið sæti sínu með sóma.  Það hefur verið byggt á ungum og afar efnilegum heimamönnum með tilstyrk erlendra leikmanna auk þess sem lánsmenn hafa styrkt hópinn. 

 

Á undanförnum dögum hefur hópur fólks í samfélaginu stigið fram og hvatt okkur til að berjast fyrir sæti liðsins í deildinni og jafnframt boðist til að leggjast á árarnar með okkur. Eins hafa fyrirtæki viljað leggja okkur lið og boðist til að standa enn frekar við bakið á okkur í þessum málum.  Þessi eindregni stuðningur er forsenda þeirrar ákvörðunar sem við höfum nú tekið.

 

Eftir fjölmennan aðalfund í gær þar sem öll stjórn deildarinnar var endurkjörin hefur sú ákvörðun verið tekin að senda lið Tindastóls til keppni í 1.deild.  Liðið mun verða skipað okkar heimamönnum eins og kostur er en jafnframt styrkt með öðrum leikmönnum.

 

Við bjóðum öll lið í 1.deild velkomin á Sauðárkróksvöll í sumar.  Áfram Tindastóll !

 

14.janúar 2014

Stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls