Silfur í Maltbikarnum

Viðar átti góðan leik. Mynd Hjalti Árna.
Viðar átti góðan leik. Mynd Hjalti Árna.

Unglingaflokkur karla lék til úrslita í Maltbikar KKÍ á sunnudaginn var. Þar mættu þeir KR-ingum sem sigruðu leikinn örugglega, lokatölur 73:111.

Pétur Rúnar og Viðar áttu góðan leik, Pétur með 27 stig og Viðar 25 og voru þeir með 9 frákost hvor um sig. Hannes setti 9 stig og aðrir minna. Allir leikmenn Tinastóls tóku þátt í leiknum en það voru Hannes Már, Ragnar Ágústsson, Sigurður Bjarni, Pétur Rúnar, Daníel Þór, Finnbogi, VIktor Jóhannes, Haukur Hlíðar, Elvar Ingi, Viðar, Kristófer Skúli og Björn Ingi.

Tap í bikarleik er alltaf súrt en annað sæti er samt sem áður frábært árangur og óskum við strákunum okkar innilega til hamingju með árangurinn.