Martin og Hildur Björg á Króknum

Landsliðsfólkið þau Martin Hermansson og Hildur Björg Kjartansdóttir koma í heimsókn á sumaræfingar körfuboltans á Sauðárkróki, miðvikudaginn 28. júní. Þau ferðast um landið í sumar og heimsækja félögin sem eru að standa fyrir sumaræfingum.

Martin Hermannsson er orðinn einn allra besti körfuboltamaður sem þjóðin á. Martin spilaði sitt fyrsta tímabil í atvinnumennskunni í vetur í Frakklandi og stóð sig frábærlega. Hildur Björg er lykilmaður í íslenska kvennalandsliðinu. Hildur Björg hefur verið að spila í háskóla í Bandaríkjunum og staðið sig vel. Hildur Björg er á leiðinni aftur í Domino's deild kvenna og kemur til með að leika með Breiðablik í vetur.

Þau byrja á því að koma á æfingu fyrir 1. til 6. bekk kl. 18:30 og á opinni sumaræfingu kl. 20:00. Við hvetjum alla okkar iðkendur til þess að mæta á æfinguna og læra af þeim bestu í íslenska boltanum í dag.