Úrvaldsdeildarsætið tryggt.

Þá liggur það ljóst fyrir að við leikum á meðal þeirra bestu á næsta tímabili. Hefur þessi vetur verið ótrúlega skemmtilegur og gaman hefur verið að fylgjast með liðinu. Á félagið mikinn efnivið bæði í strákum og ekki síst stelpum. Núna er bara að klára tímabilið með stæl, tveir leikir eftir hjá strákunum. Útileikur við Þór á föstudag og svo heimaleikur við Hött 14 mars, stelpurnar eiga eftir heimaleik við Þór Ak 15 mars.  Áfram Tindastóll.