Úrslitaleikur í drengjaflokki

Á morgun kl.16 spila strákarnir í Drengjaflokki hreinan úrslitaleik við Hauka um íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu í Smáranum í Kópavogi. 

Við hvetjum stuðningsmenn Tindastóls, jafnt heimamenn sem brottflutta til að fjölmenna á leikinn og styðja strákana til sigurs.

Áfram Tindastóll !