Tvíhöfði á fimmtudaginn

Á fimmtudaginn kemur verður tvöföld veisla þegar Njarðvíkingar mæta með bæði meistaraflokk karla og meistaraflokk kvenna í Síkið. 
Tindastóll og Njarðvík eru jöfn að stigum í Dominos-deild karla eða með fjögur stig hvort og hafa bæði lið tapað á móti Íslandsmeisturum KR. Það verður því innri barátta þessara liða sem skiptir máli upp á það að gera hvort liðið stígur hærra á stigatöflunni þetta kvöldið.
Í 1. deild kvenna sigruðu okkar stelpur sinn fyrsta leik fyrir rúmri viku á móti FSU. Njarðvíkingar hafa hins vegar spilað tvo leiki og báru sigur úr bítum í þeim báðum.
Við hvetjum alla sem geta til að mæta og verja þessu kvöldi með okkur en leikur karlanna hefst kl: 19.15 og í kjölfarið af honum, eða klukkan 21.15, hefst leikur stúlknanna. Leikirnir verða sýndir á TindastóllTV.
Áfram Tindastóll!