Pétur Rúnar valinn í U18 landsliðið.

Pétur Rúnar Birgisson var valinn í 12 manna landslið U18 og er mikil vinna hjá kappanum aldeilis að skila sér. Ekki bara það að vera valinn í liðið,  heldur var hann einnig valinn fyrirliði landsliðsins. Pétur er vel að þessu kominn og óskar KKd Tindastóls Pétri innilega til hamingju með árangurinn. Áfram Tindastóll.