Lokahóf körfuknattleiksdeildar.

Lokahófið verður á Föstudaginn langa á Kaffi Krók. Húsið opnar kl 20:00. Fordrykkur, hlaðborð og óvæntur eftirréttur. Verður hefðbundið lokahóf og bara að muna að taka góða skapið með sér. Húsið lokar á miðnætti og eftir það verður opnað á Hótelinu og þar mun hljómsveitin SSsól trylla lýðinn fram eftir nóttu með Helga Björns fremstan í flokki. Miðaverð á lokahófið er 3500.kr og er ballið ekki innifalið í því verði. Miðapantarnir á netfanginu karfa@tindastoll.is, frekari uppl. í síma 868-2355.