Leikir helgarinnar í yngri flokkum

Tveir heimaleikir verða hjá yngri flokkunum um helgina. Drengjaflokkur tekur á móti Haukum á laugardag 1.mars kl.15 og Unglingaflokkur leikur gegn Njarðvíkingum kl.13 á sunnudag 2. mars. 
11.flokkur drengja fer suður og leikur við FSu á laugardag kl.13.

Þá minnum við á leik heimaleik meistaraflokks karla gegn Vængjum Júpiters í kvöld, föstudagskvöld, kl.19:15 og útileiki meistaraflokks kvenna sem spila gegn Laugdælum á morgun laugardag kl.14 og gegn Breiðablik í Smáranum á sunnudag kl.13:30.