Körfuboltaæfingar fyrir 7.bekk og eldri

Körfuboltaæfingar stúlkna og drengja í 7. bekk og eldri hefjast á morgun, miðvikudag 14. maí og fimmtudag 15. maí. Verða þær frá kl. 16:30-18.00.

 Æfingarnar verða í umsjá Helga Freys Margeirsson og Óskars Inga Magnússonar.

Vegna skólaslita og fleiri samkoma í íþróttahúsinu í maí verða æfingarnar í fyrstu ekki ákveðna vikudaga en næstu daga verður birt æfingataflan fram í miðjan júní.