Körfuboltabúðir 2014

Körfuboltabúðir 29. - 31. ágúst 2014

Unglingaráð körfuknattleiksdeildar stendur fyrir körfuboltabúðum dagana 29. - 31. ágúst. Búðirnar eru opnar öllum börnum og unglingum fæddum á bilinu ´97-´08; jafnt þeim sem æfa körfubolta nú þegar og þeim sem hafa hug á að kynnast íþróttinni.  Æfingabúðirnar eru góður vettvangur fyrir nýja og áhugasama iðkendur til að öðlast meiri þekkingu á leiknum.


Yfirþjálfarar eru Kári Marísson og Israel Martin. Þeim til aðstoðar verða meðal annars aðrir þjálfarar körfuknattleiksdeildar.

Markmiðið með búðunum er meðal annars að:

  •          Kynna íþróttina fyrir nýjum iðkendum
  •          Efla grunnþekkingu iðkenda
  •          Auka áhuga iðkenda
  •          Efla tengsl og áhuga iðkenda í nágrannabyggðum
  •          Hefja tímabilið af krafti

 

Skráningarfrestur er til mánudags, 25. ágúst. Skráning sendist á karfan2014@gmail.com  Gefa þarf upp nafn þátttakanda og fæðingarár, nafn og símanúmer foreldris/forráðamanns.


Gert er ráð fyrir að árgangar ´03-´08 fái fjórar æfingar yfir helgina og árgangar ´97-´02 fái fimm.

Dagskrána er að finna undir flipanum Körfuboltabúðir 2014 og síðan Dagskrá til vinstri hér á síðunni. 

Þátttökugjald er kr. 2.000 kr.