Helgi Freyr framlengir við Kkd

Stjórn Kkd Tindastóls og Helgi Freyr Margeirsson hafa komist að samkomulagi um að Helgi leiki áfram með félaginu á komandi tímabili. Lýsir stjórn kkd yfir mikilli ánægju með það að helgi hafi framlengt við félagið. Helgi hefur verið einn af máttarstólpum liðsins mörg undanfarin ár og er mikil tilhlökkun í kappanum að takast á við deild þeirra bestu á komandi vetri. Þá hafa allir íslenskir leikmenn liðsins frá síðasta tímabili kvittað við félagið og er ekki hægt að segja annað en að það sé bjart yfir boltanum í skagafirði.