Flöskusöfnun körfuknattleiksdeildar í kvöld

Í kvöld fimmtudagskvöld munu krakkar úr körfuknattleiksdeild Tindastóls ganga um bæinn og safna tómum flöskum. Um er að ræða hluta af fjáröflun körfuknattleiksdeildarinnar sem rekur öflugt yngri flokka starf. 
Við biðjum bæjarbúa að taka vel á móti krökkunum.