Fjórir úr Tindastól í U16 og U18 landsliðunum

Fjórir leikmenn úr Tindastól voru valdir í U16 og U18 landsliðin í körfubolta sem taka þátt í Norðurlandamóti yngri landsliða í Solna í Svíþjóð (U16 og U18). Þau eru: Pétur Rúnar Birgisson í U18-karla, Pálmi Þórsson í U16-drengja og þær Bríet Lilja Sigurðardóttir og Linda Þórdís Róbertsdóttir í U16-stúlkna.