Fjórir leikir um helgina

Á morgun, laugardaginn 1. nóvember verða þrír leikir spilaðir hjá Tindastóli. Stúlknaflokkur ríður á vaðið hér heima og leika stelpurnar á móti Breiðablik kl:13.00. Þegar þeim leik er lokið tekur drengjaflokkur við og spilar á móti Grindavík/Þór Þorlákshöfn kl:15.00, einnig hér heima. Á morgun er einnig fyrsti leikur í bikarkeppni karla og heldur meistaraflokkurinn til Grindavíkur og keppir á móti ÍG kl:16.30.
Unglingaflokkur lokar svo helginni með leik í KR-heimilinu kl:14.00 á sunnudaginn. 
Mætum og styðjum við baki á okkar fólki, Áfram Tindastóll!!