Drengjaflokkur í undanúrslit íslandsmótsins

Drengjaflokkur komst í kvöld í undanúrslit íslandsmótsins með auðveldum sigri á Njarðvíkingum 97-53. Aldrei var nein spenna í leiknum og strax um miðjan 1. leikhluta var staðan 22-2. Eftir það hresstust gestirnir aðeins og var staðan eftir fyrsta leikhluta 29-12 og 47-24 í hálfleik. Strákarnir héldu sínu striki í síðari hálfleik og eftir þriðja leikhluta var staðan 71-32 og lokatölur 97-53 eins og áður sagði. 

Stigahæstur var Pétur Birgisson með 29 stig. Bárður og Kári Mar. rúlluðu liðinu vel og komu allir tólf leikmenn liðsins við sögu í leiknum. 

Í undanúrslitum (4-liða) eru auk Tindastóls, KR, Haukar og Grindavík.