Jólamót Tindastóls í Júdó

Frá Jólamóti. Mynd: Katharina Sommermeier.
Frá Jólamóti. Mynd: Katharina Sommermeier.

Iðkendur Júdódeildar Tindastóls kepptu á jólamóti sem fram fór í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í dag.

Góð mæting var á jólamótið sem markar lok starfs júdódeildarinnar á árinu. Alls mættu 26 keppendur til leiks, 17 stelpur og 9 strákar.  Rúmlega þriðjungur keppenda æfir austan Vatna, en þar fara æfingar fram á Hofsósi einu sinni viku undir handleiðslu Jakobs Smára bónda Pálmasonar í Garðakoti.

Margar glímur voru jafnar og skildi oft lítið á milli sigurs og taps. Allir mega þó vera sáttir við sína frammistöðu enda stóðu iðkendur sig mjög vel og gáfu lítið eftir í sínum glímum þó stundum væri við ofurefli að etja.

Allir fengu hengdan gullpening um hálsinn eftir mótið og var keppendum og áhorfendum síðan boðið upp á pítsur sem er tilhlökkunarefni margra og runnu þær ljúft niður.

Hér fyrir neðan má sjá úrslit mótsins og nokkrar myndir sem Katharina Sommermeier tók. 

Úrslit á Jólamóti Tindastóls í Júdó 2018