Yves Ngassaki nýr leikmaður Tindastóls

Yves Ngassaki. Mynd: ÓLÍNA Design
Yves Ngassaki. Mynd: ÓLÍNA Design

Knattspyrnudeild Tindastóls hefur samið við franska framherjann Yves Ngassaki um að leika með liðinu á komandi tímabili.

Yves er fæddur árið 1996 og lék með yngri liðum Cheltenham Town á Englandi.  Undanfarin ár hefur hann leikið í Kanada með liðinu CMS Oissel og nú síðast með knattspyrnuliði Sherbrooke-háskólans í sama landi. 

"Yves er stór, sterkur og fljótur framherji sem á eftir að nýtast okkar liði alveg frábærlega. Við ætlumst til mikils af honum i sumar og væntum þess að okkar frábæra samfélag taki vel á móti honum þegar hann mætir á svæðið í apríl," segir Donni þjálfari meistaraflokka Tindastóls í knattspyrnu.