Vetrarstarf Júdódeildar Tindastóls

Frá Jólamóti Júdódeildar Tindastóls 2016. Mynd Jóhanna Ey Harðardóttir.
Frá Jólamóti Júdódeildar Tindastóls 2016. Mynd Jóhanna Ey Harðardóttir.

Vetrarstarf Júdódeildar Tindastóls hefst mánudaginn 18. september. Alls verða fjórar júdóæfingar í viku fyrir alla aldurshópa auk þess sem boðið verður upp á námskeið í blönduðum bardagalistum.

Æfingar fara fram í íþróttahúsinu á Sauðárkróki líkt og á síðasta starfsári. Júdóæfingum verður ekki skipt upp eftir aldri að þessu sinni, heldur æfa allir aldurshópar saman samkvæmt æfingatímatöflu.

Einnig verður boðið upp á þriggja lotu námskeið í blönduðum bardagalistum á haustönn fyrir 12 ára og eldri. Hver lota samanstendur af þremur æfingum í Jujitsu, Kickboxi eða Boxi. Námskeiðið er því samtals níu æfingar sem fara fram á fimmtudögum klukkan 20:20 – 21:45 samkvæmt æfingatímatöflu. Þetta námskeið er frítt fyrir júdóiðkendur og er fjöldi þátttakenda takmarkaður.

Skráningar á námskeiðin fara fram rafrænt í gegnum NÓRA. Verðskrá er hægt að nálgast hér.

Þjálfarar eru: Einar Örn Hreinsson (Júdó), Arnar Már Elíasson (Jujitsu), Magnús Freyr Gíslason (Jujitsu), Judith Bischof (Kickbox), Erla Guðrún Hjartardóttir (Kickbox, Box) og Jón Kolbeinn Jónsson (Box).