Vertu með okkur í liði

Knattspyrnudeildin óskar eftir sjálfboðaliðum í allskonar verkefni í sumar, stór og smá. Við leitum að aðilum sem langar að taka þátt í starfinu og gera umgjörðina hjá okkur sem besta. Helstu verkefnin eru:

  • Öryggisgæsla á leikjum hjá meistaraflokki karla og kvenna
  • Boltasækjar
  • Aðila í miðasölu
  • Dómgæslu hjá yngri flokkunum
  • Fjölmörg verkefni tengd mótahaldi á ÓB mótinu og Króksmóti
  • Allskonar önnur tilfallandi verkefni.

Hafir þú áhuga máttu endilega fylla út þetta skjal hér. 

Vanti þig frekari upplýsingar má senda línu á Lee Ann, framkvæmdastjóra, með tölvupósti á leeann@tindastoll.is eða hringja í síma 867-3799.

Áfram Tindastóll!