Þóranna Ósk valin til keppni á NM/Baltic U23 2018.

 

NM / Baltic U23, mót Norrænu landanna og Eystrasaltslandanna í flokkum pilta og stúkna 20-22 ára, fer fram í Gävle í Svíþjóð 11.-12. ágúst.

Unglinganefnd og afreksstjóri FRÍ hafa valið 7 keppendur, sem keppa munu fyrir Íslands hönd á mótinu.

Í þeim hópi er Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir UMSS, sem keppir í hástökki 11. ágúst.

Sigurður Arnar Björnsson, þjálfari Frjálsíþróttadeildar Tindastóls, verður í þjálfarateymi liðsins.

 

Lið Íslands má sjá HÉR !

Heimasíða mótsins !