MÍ 15-22 ára í frjálsíþróttum fór fram á Selfossi helgina 15.-16. júní.

 

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum fyrir 15-22 ára fór fram á Selfossvelli um helgina 15.-16. júní.  Skráðir til leiks voru 212 keppendur frá 25 félögum og samböndum, þar á meðal voru fimm Skagfirðingar, og unnu þau öll til verðlauna, alls þrenn silfurverðlaun og fern bronsverðlaun. Góður árangur náðist á mótinu og keppnin var hörkuspennandi, enda margt af besta frjálsíþróttafólki landsins í þessum aldursflokkum.

HÉR má sjá öll úrslit mótsins.

Árangur Skagfirðinganna:

Andrea Maya Chirikadzi 16-17 ára:

2. sæti í kúluvarpi (3 kg): 11,70m (pm).

3. sæti i kringlukasti (1 kg): 24,52m.

Þá varð hún einnig í 5. sæti í spjótkasti og 6. sæti í sleggjukasti.

Stefanía Hermannsdóttir 16-17 ára:

2. sæti í kringlukasti (1 kg): 25,62m (pm).

Hún varð einnig í 4. sæti í spjótkasti.

Rúnar Ingi Stefánsson 20-22 ára:

2. sæti í kúluvarpi (7,26 kg): 11,27m (pm).

Hann varð einnig í 4. sæti í spjótkasti.

Ragna Vigdís Vésteinsdóttir 20-22 ára:

3. sæti í kúluvarpi (4 kg): 10,13m.

3. sæti í spjótkasti (0,6kg): 23,42m.

Sveinbjörn Óli Svavarsson 20-22 ára:

3. sæti í 200m hlaupi: 22,87sek.

Hann varð einnig í 4. sæti í 100m hlaupi.

Til hamingju öll !