Evrópubikarkeppnin í frjálsum 2019.

Sigursveitin í 4x100m. Juan Ramon, Jóhann Björn, Kolbeinn Höður og Ari Bragi.       (Mynd: FRÍ).
Sigursveitin í 4x100m. Juan Ramon, Jóhann Björn, Kolbeinn Höður og Ari Bragi. (Mynd: FRÍ).

 

Evrópubikarkeppni landsliða í frjálsíþróttum 2019 var haldin 9.-11. ágúst.  Keppt var í fjórum deildum: Ofurdeildinni, 1., 2. og 3. deild. Flokkun liðanna eftir deildum má sjá HÉR !

Íslendingar kepptu í 3. deild ásamt tólf öðrum liðum, og fór sú keppni fram í Skopje í Norður-Makedóniu 10.-11. ágúst. Keppt var í tuttugu greinum í karlaflokki og tuttugu greinum í kvennaflokki. Hvert lið sendi einn keppanda í hverja grein og fengust 13 stig fyrir fyrsta sætið, 12 stig fyrir annað sætið, og svo koll af kolli. Aðeins eitt lið komst upp um deild og mun keppa í 2. deildinni eftir tvö ár. Árið 2017 féll Ísland niður um deild, og var stefnan sett á að komast strax upp aftur. Heimasíða keppninnar.

Íþrótta- og afreksnefnd FRÍ valdi lið Íslands, 17 konur og 17 karla. Í liðinu voru tveir Skagfirðingar: Ísak Óli Traustason keppti í 110m grind. og langstökki, og Jóhann Björn Sigurbjörnsson keppti í 100m hlaupi og 4x100m boðhlaupi. Sigurður Arnar Björnsson, verkefnastjóri landsliða FRÍ og aðalþjálfari Fd. Tindastóls, var í fylgdarteymi liðsins.

Landslið Íslands !

Af keppni fyrri dags:

Þegar lokið var keppni í helmingi greina í Evrópubikarkeppninni, 3. deild, var staða efstu liða þessi: 1. Serbía 230 stig, 2. Ísland 222 stig og 3. Bosnía-Herzegovína  206 stig. Tindstælingarnir í hópnum stóðu sig vel. Jóhann Björn Sigurbjörnsson var í sigursveit Íslands í 4x100m boðhlaupi, og varð í 4. sæti í 100m hlaupi. Ísak Óli Traustason varð í 6. sæti í langstökki.   

Af keppni seinni dags:

Það stefndi í gríðarlega baráttu Íslendinga og Serba um sigur í keppninni. Ísak Óli keppti í 110m grindahlaupi og varð í 4. sæti. Þrátt fyrir góða baráttu Íslendinganna tókst Serbum að halda forystunni fram í síðustu grein, 4x400m boðhlaup karla. Á endasprettinum þar hrinti serbneski hlauparinn keppinaut úr vegi, sem varð til þess að serbneska sveitin var dæmd úr leik, og fékk því ekkert stig fyrir hlaupið. Það varð til þess að íslenska liðið náði fram úr og sigraði, keppir því í 2. deild næst!

Lokastaðan: 1. Ísland 430 stig, 2. Serbía 427 stig, 3. Bosnía-Herzegovína 385 stig, 4. Moldavía 377 stig, 5. Svartfjallaland 283 stig. Íslendingarnir unnu samtals til 25 verðlauna í greinunum 40, 5 gull, 13 silfur og 7 brons. 

Öll úrslit má sjá HÉR !