Vormót Tindastóls í Júdó

Vormót Tindastól í Júdó verður haldið í íþróttahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 28. maí. Mótið hefst klukkan 10:00 með sameiginlegri æfingu sem stendur til 11:00. Mótið sjálfst hefst svo um 11:30. Áætluð mótslok eru um 15:00.

Mótið er opið öllum fjórtán ára og yngri (U15) og búist er við keppendum frá Blönduósi, Akureyri og Reykjavík auk heimamanna á Sauðárkróki. Keppt verður í aldurs- og þyngdarflokkum. Verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sæti hvers flokks. Skráningargjald er 2.000 kr. og greiðist á mótsstað fyrir mót. Hægt er að skrá keppendur hér.