
Ingvi skoraði fyrir Tindastól

Hilmar skoraði fyrir Drangey
Drangey ferðaðist í Kópavoginn og mætti þar Friðriki Dór og
félögum í IH. Drangeyjarmenn voru í markmannsvandræðum fyrir leikinn. Óli
Grétar aðalmarkmaður var á sólarströnd á Benedorm og varamarkmaðurinn Brynjar
Rafn Birgisson lá veikur heima og því úr vöndu að ráða.
Halldór Jón Sigurðsson þjálfari ákvað að hann væri besti
kosturinn í markið og hafði væntanlega rétt fyrir sér, því kappinn varði
vítaspyrnu IH manna stórglæsilega efst upp í hægra horninu.
En leikurinn þróaðist þannig að Drangeyjarmenn voru betri í
fyrri hálfeik án þess að ná að koma inn marki. IH menn skora fyrst en markahrókurinn Hilmar Þ. Kárason jafnaði metin fljótlega fyrir okkar menn.
Í seinni hálfleik skoruðu IH menn tvisvar án þess að Drangey
bættu neinu við og lokatölur því 3-1.
Eftir leikinn er Drangey í 5.sæti B-riðils með 4. Stig og
markatöluna 8-13
Á laugardeginum fóru Tindastólsmenn til Akureyrar og mættu
þar KA mönnum.
Frábærar aðstæður voru á Akureyrarvelli og ekkert því til
fyrirstöðu að spilaður yrði skemtilegur bolti. Það varð rauninn og fyrri
hálfleikur að margra mati sá best spilaði í sumar hjá Stólunum.
Leikurinn fór fjörlega af stað, KA menn fengu fyrsta færið
þegar þeir komast upp vinstri kantinn og senda fyrir en Ingvi Hrannar var
fyrstur að átta sig og kom fyrirgjöfinni afturfyrir. Stuttu seinna fær Max
síðan boltann frá Ingva og sendir hann innfyrir á Ben sem afgreiðir hann
stórglæsilega yfir Sandor Matus markmann KA.Það er síðan alltof stuttu eftir okkar mark að KA menn
jafna, hræðileg varnarmistök verða til þess að Brian Gilmour kemst einn í
gegnum vörn Tindastóls, og klárar vel. Þó svo að varnarmenn Tindastóls hefðu
átt að vera búnir að stoppa Gilmour eða þröngva hann betur yfir á vinstri
fótinn.
Eftir þetta náum við nokkrum tökum á leiknum, eigum
hættulegar sóknir þar sem Ben og Max eiga góða sénsa, en ná ekki að skora.
En það er síðan KA menn sem skora næsta mark. Við missum boltann klaufalega og þeir komast einir upp
vinstri kantinn, í gegnum alltof flata vörn Tindastóls. Senda boltann fyrir
markið þar sem David Diztl skýtur en Sebastian ver vel, en boltinn hrekkur því
miður til Ævars Inga sem klárar vel fyrir KA menn.
Liðin halda áfram að sækja á víxl, en sem betur fer skorum
við næsta mark leiksins. Ingvi vinnu boltann vel í vinstri bakverðinum. Sendir
hann á Max sem geysist af stað, sendir hann síðan aftur á Ingva, sem á einhvern
óskiljanlegan hátt var kominn fram úr Max, En Ingvi klárar færið sitt mjög vel
og jafnar og staðan 2-2 í hálfeik.
Ben þurfti að yfirgefa völlinn í hálfleik vegna meiðsla og Fannar Freyr
kom inná fyrir hann. Hann var ekki lengi að koma sér í dauðafæri. Reif af sér
varnarmennina og komst einn gegn Sandor í markinu, sem átti ótrúlega
markvörslu.
Liðin skiptast á sóknum eftir þetta og eftir eina hornspyrnu
skora KA menn en dómari leiksins með allt á hreinu og dæmdi markið réttilega
af vegna brots.
Eftir þetta ná KA menn að halda boltanum aðeins betur. En
við beitum rosalegum skyndisóknum þar sem Max, Theo og Fannar áttu allir mjög góða spretti.
Það er síðan á 90.mín að Arnar Skúli fær sitt annað gula spjald og þar með
rauða, og eru þá rauðu spjöld Tindastóls orðin þrjú í sumar, sem er alltof
mikið. Leiknum var hinsvegar ekki alveg lokið. Fannar Freyr fær boltann á okkar
vítateig og geysist upp völlinn og hristir af sér menn, Theo fer með honum upp
í þessa skyndisókn, En Brian Gilmour brýtur á Theo í þessari skyndisókn og gaf
dómari leiksins honum réttilega sitt annað gula spjald og þeir því orðnir
einnig 10. Leikurinn kláraðist síðan fljólega eftir þetta og niðurstaðan 2-2
jafntefli.
Heilt yfir kannski sanngjörn úrslit, en við getum samt verið
pínu svekktir að hafa ekki tekið öll þrjú stigin. Góður leikur á margan hátt
hjá strákunum og vonandi að þeir byggi ofan á þetta fyrir næsta leik sem verður
á Sauðárkróksvelli á laugardaginn kl:14:00 en þá mætir Óli Þórðar og Víkingur
Reykjavík í heimsókn.
Strax á eftir honum eða kl:17:00 mætir Siglingaklúbburinn
Drangey, Skautafélagi Reykjavíkur og verður forvitnilegt að sjá þá baráttu.
Allir á völlinn um helgina og hvetjum okkar stráka.
Hægt er að sjá brot úr leiknum hérna