MYNDIR
31. maí 2013
sund.PNG
09. apríl 2013
skíđi 032.jpg
09. apríl 2013
skíđi 071.jpg
 

Landsbankinn - lengja

Theodore Furness skoraði þrjú mörk í leiknum en þurfti að yfirgefa völlinn þegar hann fékk að sjá rauða spjaldið.
Theodore Furness skoraði þrjú mörk í leiknum en þurfti að yfirgefa völlinn þegar hann fékk að sjá rauða spjaldið.
Atli Arnarson skoraði gott mark á Ísafirði.
Atli Arnarson skoraði gott mark á Ísafirði.
Max Touloute skoraði fyrsta mark leiksins og sitt fyrsta mark fyrir Tindstól.
Max Touloute skoraði fyrsta mark leiksins og sitt fyrsta mark fyrir Tindstól.

M.fl.karla

Fyrsti sigurinn í höfn

Tindastóll lék í dag við lið BÍ/Bolungarvíkur í 1.deildinni og var leikurinn á Ísafirði.  Liðið fór vestur í gær og strákarnir voru svo sannarlega tilbúnir í verkefnið því þeir voru mun betra liðið og sigruðu 2-5.

Aðstæður voru skelfilegar á Ísafirði rok og rigning og völlurinn afar erfiður.  Okkar leikmenn léku á móti sterkum vindi í fyrri hálfleik en tóku öll völd á vellinum strax í upphafi.  Max Touloute skoraði fyrsta mark okkar á 27. mín og síðan skoraði Theo á 33. mín. og staðan orðin 0-2.  Þannig var staðan í hálfleik.

Áfram hélt dansinn í seinni hálfleik og Theo skoraði gott mark en dómari leiksins skráði það sem sjálfsmark, sem var arfavitlaust. 

Theo var síðan aftur á ferðinni og  kom með fjórða markið á 68. mín og þar  með sitt þriðja mark í leiknum.

Atli Arnarson skoraði síðasta mark leiksins og innsiglaði góðan sigur.

Tvö rauð spjöld litu dagsins ljós, eitt hjá heimamönnum og síðan Theodore Furness í okkar liði.

Frábær sigur og fyrstu stigin í höfn hjá okkur.  Það er óhætt að taka ofan fyrir öllum leikmönnum okkar fyrir vinnuframlag sitt í leiknum.  Leikmenn börðust vel og spiluðu skynsamlega við þessar erfiðu aðstæður. 

 

  1-20 af 20  
KlukkanDagsetningFréttHöfundur
21:41 12. jún. 2013  

Spilað á Blönduósi

Tindastóll - Fjölnir á föstudaginn kl:19:15

Annar "heimaleikur" tímabilsins fer fram á Blönduósi á föstudaginn. En fyrsti heimaleikurinn fór fram í Boganum. Mikilvægur leikur framundan hjá strákunum í M.fl karla gegn Fjölni og hvetjum við alla til þess að rúlla yfir fjallið og hvetja strákana áfram. Leikurinn hefst kl:19:15 á föstudaginn
omar
23:12 03. jún. 2013  

Svekkjandi jafntefli í Ólafsvík

Jöfnunarmark heimastúlkna á 91. mín.

Það var 7 stiga hiti og norðaustan gola þegar leikur Tindastóls og Víkings Ólafsvík byrjaði, völlurinn grænn, fagur og blautur, fótbolta aðstæður mjög góðar. Byrjunarlið Tindastóls: Bryndís Rut (M), Sunna Björk (F), Guðrún Jenný, Snæbjört, Ólína Sif, Guðný Þóra, Carolyn Polcari, Rakel Svala, Svava Rún, Leslie Briggs og Rakel Hinriks.
tindastollkvk
22:27 03. jún. 2013  

Tap gegn Grindavík

Úrslit leiksins 4-1

Tindastóll tapaði sínum fyrsta leik í 1.deildinni í ár þegar Grindvíkingar unnu full stóran sigur 4-1. Atli Arnarson skoraði mark okkar manna en það dugði ekki því Grindvíkingar settu fjögur á okkur.
StefanA
09:58 24. maí 2013  

Þrjú stig á töfluna

2-1 sigur á Reykajvíkur Þrótti

Steven Beattie og Elvar Páll með mörk okkar manna sem lönduðu fyrsta deildarsigrinum í ár. Næsti leikur er gegn Hamri á miðvikudaginn, en spilað verður á Grýluvelli.
StefanA
14:49 19. maí 2013  

Jafntefli í fyrsta heimaleik tímabilsins

Tindastóll gerði 1-1 jafntefli gegn Völsung. Liðið er komið með tvö stig eftir tvo leiki. Næsti leikur er á fimmtudaginn gegn Þrótti, en sá leikur er sýndur í beinni á SportTV.
StefanA
09:41 15. maí 2013  

Tindastóll komnir í 32.liða úrslit

5-1 sigur á Dalvík/Reyni

Tindastóll sigraði Dalvík/Reyni 5-1 í Boganum í gær. Um var að ræða leik í 2.umferð Borgunarbikarsins. Mörk okkar manna skoruðu Chris Tsonis (2) , Elvar Páll Sigurðsson, Steven Beattie og Atli Arnarson. Dregið verður í hádeginu í dag í 32.liða úrslitum.
StefanA
19:47 09. maí 2013  

Leiknir vs Tindastóll

Lokatölur 1-1

1.umferðin hófst með leik Leiknis og Tindastólsmanna. Lokatölur 1-1 þar sem Elvar Páll Sigurðsson skoraði mark okkar manna. Fín frammistaða og vonandi að strákarnir byggi ofaná þetta fyrir næsta leik.
omar
13:51 08. maí 2013  

Tveir nýjir leikmenn til Tindastóls

Elvar Páll & Rodrigo Morin

Tindastóll hefur gengið frá samningum við tvo leikmenn fyrir komandi tímabil. Elvar Páll Sigurðsson kemur til Tindastóls á lánssamningi, Elvar er bróðir Arnars Sigurðssonar og mun því bætast enn í bræðrahópinn hjá Tindastól. Elvar spilaði á síðasta tímabili með ÍR. Rodrigo Morin er einnig gengin til liðs við Tindastól, en hann kemur úr Háskólanum West Texas A&M, það er einmitt sami skóli og Seb Furness kom frá.
omar
11:15 03. maí 2013  

Er hann á lífi ?

Völlurinn ekki í góðu ástandi nú í byrjun Maí

Núna eru rétt rúmar tvær vikur í að flautað verður til leiks á Sauðárkróksvelli og bæjarprýðin lítur vægast sagt illa út. Mikill klaki lá á vellinum í langan tíma í vetur og fór klakinn ekki af vellinum fyrr en vinnuvélar voru búnar að brjóta hann af. Hvort þær aðgerðir fóru of seint af stað er erfitt að svara á þessum tímapunkti en ljóst er að við þurfum mikinn hlýindakafla, kraftaverk, nýtt gras... eða gervigras til að geta spilað á grænu grasi í byrjun móts.
StefanA
16:21 27. apr. 2013  

Nýr búningur

Tindastóll spilar í nýjum búningi í sumar

í kjölfar samninga sem Knattspyrnudeild Tindastóls gerði við JAKO á dögunum mun Tindastóll spila í nýjum búningum þetta keppnistímabilið. Stutt er í fyrsta leik tímabilsins og því ekki seinna vænna en að auglýsa nýja búningin. Ingvi Hrannar, Edvard Börkur og Bjarni Smári tóku sig til og útbjuggu auglýsingu til að kynna nýja búnigin,
omar
15:12 07. apr. 2013  

JAKO og Tindastóll

Knattspyrnudeildin undirritar samning við JAKO

Í vikunni var undirritaður samstarfssamningur til fjögurra ára á milli Knattspyrnudeildar Tindastóls og JAKO. Tindastóll mun leika í JAKO búningum næstu fjögur árin og á það við alla flokka félagsins.
omar
13:07 07. apr. 2013  

Lengjubikarinn

Tap hjá báðum liðum

M.fl.karla og m.fl. kvenna töpuðu bæði leikjum sínum í gær 0-3. Leikur strákanna var að sögn mjög dapur og komust þeir aldrei inn í leikinn. Því fór sem fór.
omar
16:11 06. apr. 2013  

Lengjubikarinn

Tveir leikir hjá Tindastóli í dag

Báðir meistaraflokkarnir eiga leik í dag í Lengjubikarnum. Kl. 16:00 leika strákarnir í Reykjavík en mótherjinn er BÍ/Bolungarvík. Kl. 17:00 hefst leikur hjá stelpunum við Hött en sá leikur verður í Boganum á Akureyri.
omar
20:43 01. apr. 2013  

Hólmar Eyjólfsson leikur með Tindastóli í sumar.

Fékk leyfi frá VfL Bochum að leika þar í sumarfríi sínu.

Knattspyrnumaðurinn Hólmar Eyjólfsson mun leika með Tindastóli í sumar í 1.deildinni. Samningar hafa náðst við félag hans VfL Bochum í Þýskalandi, en það var faðir hans Eyjólfur Sverrisson sem sá um þessa samninga fyrir Tindastól.
omar
16:22 21. mars 2013  

Allir fótboltakrakkar fá bol

Allir þeir krakkar sem stundað hafa fótbolta með Tindastóli í vetur munu fá afhenta æfingaboli merkta félaginu á æfingatíma á morgun og laugardag. Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með því að krakkarnir mæti svo allir verði glaðir.
omar
21:56 17. mars 2013  

2-2 Jafntefli gegn ÍBV

Flottur leikur um helgina

Tindastóll spilaði gegn ÍBV í lengjubikarnum og með flottum leik komu strákarnir tvisvar til baka gegn Pepsi-deildarliðinu og úrslit leiksins 2-2. Flottur leikur og mjög skemmtilegur bolti sem var spilaður hjá strákunum í gær. Næsti leikur er á þriðjudaginn gegn Grindavík.
StefanA
21:48 10. mars 2013  

Silfurdrengirnir komnir heim eftir Greifamótið

4.flokkur karla

4.flokkur karla tapaði úrslitaleik Greifamóts KA naumlega, en frammistaða drengjana var til fyrirmyndar. Tindastóll sendi til leiks eitt lið á Greifamóti - KA um helgina. Mótið er fyrir stráka í 4.flokku en það eru strákar fæddir 1999 og 2000 en yngri árgangurinn er að spila í fyrsta sinn á stórum velli......
StefanA
09:59 08. mars 2013  

Bjarki Már gerist kartöflubóndi

genginn í raðir Magna

Varnarjaxlinn og grunnskólakennarinn Bjarki Már Árnason sem hefur leikið með liði Tindastóls undanfarin ár og liði Drangeyjar í fyrra hefur skipt yfir í Magna frá Grenivík sem leikur í 3.deild.
omar
13:16 25. feb. 2013  

2-0 tap gegn Íslandsmeisturum FH

annar leikur í Lengjubikarnum

Tindastoll mætti FH á laugardaginn sem leið. FH ingar voru töluvert mikið meira með boltann í leiknum en Tindastólsmenn spiluðu fantafínavörn allann leikinn og gerðu ógnarsterku liði FH mjög erfitt fyrir. Lokatölur leiksins hinsvegar 2-0 fyrir FH og er Tindastóll enn án stigi í A-deild Lengjubikarsins.
StefanA
22:54 23. feb. 2013  

Aðalfundur knattspyrnudeildarinnar

laugardaginn 2.mars kl. 11:00 í vallarhúsinu

omar
   
 
DAGSKRÁ
Júní 2013
SMŢMFFL
2627282930311
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30123456
FyrriNúnaNćsti
 
SPJALLIĐ
Taktu ţátt í spjallinu, segđu ţína skođun, leggđu eitthvađ til málanna.
Skođa >>

kroksmot-banner.jpgLogo_landsbankamotfiskseafood_1.jpgSparisjóður Skagafjarðarfjolnet_logo (2).jpgSjóvátengilllogo.gifsteinull_1.jpg

UNGMENNAFÉLAG TINDASTÓLL   VÍÐIGRUND 5   550 SAUÐÁRKRÓKUR   SÍMI 453 6080   KT. 650269-5949