MYNDIR
09. apríl 2013
skíđi 052.jpg
09. apríl 2013
skíđi 013.jpg
09. apríl 2013
skíđi 023.jpg
 

Landsbankinn - lengja

Hilmar skoraði tvö mörk fyrir Drangey
Hilmar skoraði tvö mörk fyrir Drangey

M.fl Karla

Drangey með jafntefli í fyrsta leik

3.deildin er farinn að rúlla og fengu strákarnir í Drangey, Garðbæinga í heimsókn. Hilmar Þór Kárason skoraði strax á 6.mín og kom strákunum yfir. Drangey hafði talsverða yfirburði í fyrri hálfleiknum en mark nr.2 kom síðan á lokamínutu síðari hálfeiks, þegar Benni sólaði hvern garðbæingin á fætur öðrum og smellti honum í hornið, 2-0 verðskulduð forysta. En í næstu sókn fengu Garðbæingar hornspyrnu sem þeir nýttu sér vel og náðu því góðu sjálfsstraustsmarki rétt fyrir hálfleik. 

Drangey hóf seinni hálfleikinn betur og áttu margar góðar sóknir áður en ein þeirra skilaði árangri. Bjarni Smári Gíslason átti þá góða fyrirgjöf þar sem Hilmar var mættur á nærstöng og sneyddi hann fallega í fjærhornið. Þarna héldu áhorfendur að strákarnir myndu sigla auðveldum sigri í höfn. 

En dómari leiksins var á öðru máli þegar hann dæmdi ansi ódýra vítaspyrnu á reynsluboltann Bjarka Má.. Garðbæingar fóru á punktinn og minnkuðu muninn í 3-2 á 84.mín. Smá reynsluleysi kom þá í ljós í liði Drangeyjar, því strákunum gekk ekki nóg of vel að halda boltanum innan liðsins og sigla þessu í höfn. Í staðinn fengu Garðbæingar hornspyrnu á 90.mínutu sem þeir nýttu sér vel og skoruðu og þannig endaði leikurinn. 3-3- jafntefli staðreynd en strákarnir voru feykigóðir í þessum leik og hafa engu að kvíða með framhaldið, ef þetta verður spilamennskan hjá liðinu í sumar. 
  1-20 af 20  
KlukkanDagsetningFréttHöfundur
14:49 19. maí 2013  

Jafntefli í fyrsta heimaleik tímabilsins

Tindastóll gerði 1-1 jafntefli gegn Völsung. Liðið er komið með tvö stig eftir tvo leiki. Næsti leikur er á fimmtudaginn gegn Þrótti, en sá leikur er sýndur í beinni á SportTV.
StefanA
09:41 15. maí 2013  

Tindastóll komnir í 32.liða úrslit

5-1 sigur á Dalvík/Reyni

Tindastóll sigraði Dalvík/Reyni 5-1 í Boganum í gær. Um var að ræða leik í 2.umferð Borgunarbikarsins. Mörk okkar manna skoruðu Chris Tsonis (2) , Elvar Páll Sigurðsson, Steven Beattie og Atli Arnarson. Dregið verður í hádeginu í dag í 32.liða úrslitum.
StefanA
19:47 09. maí 2013  

Leiknir vs Tindastóll

Lokatölur 1-1

1.umferðin hófst með leik Leiknis og Tindastólsmanna. Lokatölur 1-1 þar sem Elvar Páll Sigurðsson skoraði mark okkar manna. Fín frammistaða og vonandi að strákarnir byggi ofaná þetta fyrir næsta leik.
omar
13:51 08. maí 2013  

Tveir nýjir leikmenn til Tindastóls

Elvar Páll & Rodrigo Morin

Tindastóll hefur gengið frá samningum við tvo leikmenn fyrir komandi tímabil. Elvar Páll Sigurðsson kemur til Tindastóls á lánssamningi, Elvar er bróðir Arnars Sigurðssonar og mun því bætast enn í bræðrahópinn hjá Tindastól. Elvar spilaði á síðasta tímabili með ÍR. Rodrigo Morin er einnig gengin til liðs við Tindastól, en hann kemur úr Háskólanum West Texas A&M, það er einmitt sami skóli og Seb Furness kom frá.
omar
11:15 03. maí 2013  

Er hann á lífi ?

Völlurinn ekki í góðu ástandi nú í byrjun Maí

Núna eru rétt rúmar tvær vikur í að flautað verður til leiks á Sauðárkróksvelli og bæjarprýðin lítur vægast sagt illa út. Mikill klaki lá á vellinum í langan tíma í vetur og fór klakinn ekki af vellinum fyrr en vinnuvélar voru búnar að brjóta hann af. Hvort þær aðgerðir fóru of seint af stað er erfitt að svara á þessum tímapunkti en ljóst er að við þurfum mikinn hlýindakafla, kraftaverk, nýtt gras... eða gervigras til að geta spilað á grænu grasi í byrjun móts.
StefanA
16:21 27. apr. 2013  

Nýr búningur

Tindastóll spilar í nýjum búningi í sumar

í kjölfar samninga sem Knattspyrnudeild Tindastóls gerði við JAKO á dögunum mun Tindastóll spila í nýjum búningum þetta keppnistímabilið. Stutt er í fyrsta leik tímabilsins og því ekki seinna vænna en að auglýsa nýja búningin. Ingvi Hrannar, Edvard Börkur og Bjarni Smári tóku sig til og útbjuggu auglýsingu til að kynna nýja búnigin,
omar
15:12 07. apr. 2013  

JAKO og Tindastóll

Knattspyrnudeildin undirritar samning við JAKO

Í vikunni var undirritaður samstarfssamningur til fjögurra ára á milli Knattspyrnudeildar Tindastóls og JAKO. Tindastóll mun leika í JAKO búningum næstu fjögur árin og á það við alla flokka félagsins.
omar
13:07 07. apr. 2013  

Lengjubikarinn

Tap hjá báðum liðum

M.fl.karla og m.fl. kvenna töpuðu bæði leikjum sínum í gær 0-3. Leikur strákanna var að sögn mjög dapur og komust þeir aldrei inn í leikinn. Því fór sem fór.
omar
16:11 06. apr. 2013  

Lengjubikarinn

Tveir leikir hjá Tindastóli í dag

Báðir meistaraflokkarnir eiga leik í dag í Lengjubikarnum. Kl. 16:00 leika strákarnir í Reykjavík en mótherjinn er BÍ/Bolungarvík. Kl. 17:00 hefst leikur hjá stelpunum við Hött en sá leikur verður í Boganum á Akureyri.
omar
20:43 01. apr. 2013  

Hólmar Eyjólfsson leikur með Tindastóli í sumar.

Fékk leyfi frá VfL Bochum að leika þar í sumarfríi sínu.

Knattspyrnumaðurinn Hólmar Eyjólfsson mun leika með Tindastóli í sumar í 1.deildinni. Samningar hafa náðst við félag hans VfL Bochum í Þýskalandi, en það var faðir hans Eyjólfur Sverrisson sem sá um þessa samninga fyrir Tindastól.
omar
16:22 21. mars 2013  

Allir fótboltakrakkar fá bol

Allir þeir krakkar sem stundað hafa fótbolta með Tindastóli í vetur munu fá afhenta æfingaboli merkta félaginu á æfingatíma á morgun og laugardag. Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með því að krakkarnir mæti svo allir verði glaðir.
omar
21:56 17. mars 2013  

2-2 Jafntefli gegn ÍBV

Flottur leikur um helgina

Tindastóll spilaði gegn ÍBV í lengjubikarnum og með flottum leik komu strákarnir tvisvar til baka gegn Pepsi-deildarliðinu og úrslit leiksins 2-2. Flottur leikur og mjög skemmtilegur bolti sem var spilaður hjá strákunum í gær. Næsti leikur er á þriðjudaginn gegn Grindavík.
StefanA
21:48 10. mars 2013  

Silfurdrengirnir komnir heim eftir Greifamótið

4.flokkur karla

4.flokkur karla tapaði úrslitaleik Greifamóts KA naumlega, en frammistaða drengjana var til fyrirmyndar. Tindastóll sendi til leiks eitt lið á Greifamóti - KA um helgina. Mótið er fyrir stráka í 4.flokku en það eru strákar fæddir 1999 og 2000 en yngri árgangurinn er að spila í fyrsta sinn á stórum velli......
StefanA
09:59 08. mars 2013  

Bjarki Már gerist kartöflubóndi

genginn í raðir Magna

Varnarjaxlinn og grunnskólakennarinn Bjarki Már Árnason sem hefur leikið með liði Tindastóls undanfarin ár og liði Drangeyjar í fyrra hefur skipt yfir í Magna frá Grenivík sem leikur í 3.deild.
omar
13:16 25. feb. 2013  

2-0 tap gegn Íslandsmeisturum FH

annar leikur í Lengjubikarnum

Tindastoll mætti FH á laugardaginn sem leið. FH ingar voru töluvert mikið meira með boltann í leiknum en Tindastólsmenn spiluðu fantafínavörn allann leikinn og gerðu ógnarsterku liði FH mjög erfitt fyrir. Lokatölur leiksins hinsvegar 2-0 fyrir FH og er Tindastóll enn án stigi í A-deild Lengjubikarsins.
StefanA
22:54 23. feb. 2013  

Aðalfundur knattspyrnudeildarinnar

laugardaginn 2.mars kl. 11:00 í vallarhúsinu

omar
23:17 18. feb. 2013  

Tap gegn Fylki

TG9 með eina mark leiksins

Tindastóll spilaði sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum þetta árið. Leikurinn endaði 1-0 fyrir Fylki þar sem Tryggvi Guðmundsson skoraði eina mark leiksins á 48.mín beint úr aukaspyrnu. Ágætis leikur hjá strákunum og með smá heppni hefðu þeir getað fengið eitthvað útúr þessum leik. Næsti leikur er á laugardaginn þegar við mætum Íslandsmeisturum FH í Akraneshöllinni
omar
06:31 13. feb. 2013  

11 leikmenn skrifa undir hjá Tindastól

Alvöru byggðastefna í gangi

Tindastóll hefur gengið frá samningum við 11 leikmenn fyrir næsta sumar. 10 leikmenn skrifa undir til ársloka 2014 og einn til ársloka 2013. Gleðifréttir að svo margir skrifi undir í einu hjá félaginu og komi aftur heim í sumar.
omar
06:17 12. feb. 2013  

Riðlaskipting í 1.deild kvenna klár

Tindastóll spilar í A-riðli

Riðlaskipting er klár fyrir keppni í 1. deild kvenna í sumar. Leikin er tvöföld umferð áður en kemur fjögurra liða úrslitakeppni. Tindastóll er í A-riðli með Álftanes BÍ/Bolungarvík , Fram , Fylkir , Haukar , ÍA , ÍR og Víking Ó.
omar
11:06 11. feb. 2013  

Dregið í Borgunarbikarnum

Stelpurnar mæta Völsung - Strákarnir mæta Dalvík/Reyni eða Hömrunum.

M.fl kvenna mætir Völsung í 2.umferð Borgunarbikarsins. Spilað verður á Sauðárkróksvelli 28.maí. M.fl karla drógust gegn Dalvík/Reyni eða Hömrunum í 2.umferð bikarsins. Leikurinn verður spilaður á útivelli þrettánda eða fjórtánda Maí. Það má minnast þess að Tindastóll féll einmitt útúr bikarnum í fyrra gegn Dalvík/Reyni.
omar
   
 
DAGSKRÁ
Maí 2013
SMŢMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNćsti
 
SPJALLIĐ
Taktu ţátt í spjallinu, segđu ţína skođun, leggđu eitthvađ til málanna.
Skođa >>

kroksmot-banner.jpgLogo_landsbankamotfiskseafood_1.jpgSparisjóður Skagafjarðarfjolnet_logo (2).jpgSjóvátengilllogo.gifsteinull_1.jpg

UNGMENNAFÉLAG TINDASTÓLL   VÍÐIGRUND 5   550 SAUÐÁRKRÓKUR   SÍMI 453 6080   KT. 650269-5949