MYNDIR 09. apríl 2013
09. apríl 2013
09. apríl 2013
|


Jón Brynjar Knattspyrnudeild | 27. apríl 2012 Hin HliðinJón Brynjar
Nafn: Jón Brynjar Sigmundsson Gælunafn: JB (á ensku) Árgangur: 1977 Búseta: Reykjanesbær(Í næsta nágrenni við Viðar Einarsson) Hvað eldaðir þú síðast ? Lasania
Besta bíómynd ?Svartur á leik Uppáhalds tónlistarmaður ?Allir íslenskir tónlistarmenn Uppáhalds lið ?Manchester United
Hvað er verið að brasa í dag ?Ég er sementsflutningabílstjóri hjá Aalborg-Portland
Hvar elstu upp ? Fyrstu þrjú ár ævinnar ólst ég upp í Fljótunum og eftir það á Króknum. Á hvaða árum spilaðir þú með Tindastól ?1986-1997 að undanskildu 1994, þá spilaði ég með því fornfræga félagi Þrym
Hvaða þjálfara varstu með á Króknum ?Kristjana Aradóttir(systir Kristjáns Ara handboltamanns) Bjarni Jóhannsson, Árni Ólason, Björn Björnsson, Guðbjartur Haraldsson, Sverrir Sverrisson, Páll Kolbeinsson, Atli Freyr Sveinsson þegar ég spilaði með Þrym, Helgi Már Jóhannson, Alfreð Guðmundsson og Gísli Sigurðsson.
Hvernig var tíminn á Króknum ?Hann var mjög skemmtilegur, gott að alast þar upp. Ertu enn að spila fótbolta í dag ?Nei ég hætti eftir tímabilið 1997 Varstu hjátrúarfullur fyrir leiki (ef já, hvernig ? )Já ég var alltaf með grænt Orbit tyggjó einhverra hluta vegna. Hvert var þitt númer hjá Tindastól ?12
Hvaða stöðu spilaðir þú ?Ég var markmaður Hver sá um að skipuleggja liðs-partyin ?Davíð Þór Rúnarsson Hvernig var best að pirra andstæðingin ?Það var að hjálpa vítaskyttum andstæðinganna að stilla boltanum upp fyrir vítaspyrnur, það virkaði ótrúlega oft.
Hver var erfiðasti andstæðingurinn ?Hafþór Kolbeinsson frá Siglufirði Ekki erfiðasti andstæðingurinn ?Skarphéðinn Freyr Ingason þegar við í 3. flokki unnum HSÞ 17-1
Mestu vonbrigðin í boltanum ?Að hafa fallið út fyrir Víkingi R í 16 liða úrslitum í bikarkeppni 2. flokks sumarið 1996. Leikurinn var í járnum allann leikinn en Víkingar unnu 2-3. Sætasti sigurinn í boltanum ?Þegar við 2. flokknum sumarið 1996 slógum KA út í fyrrnefndri bikarkeppni. Við fengum eina eða tvær sóknir í öllum leiknum og unnum 1-0
Grófasti leikmaður Tindastóls þegar þú varst að spila ?Geri ekki upp á milli Inga Björgvins Kristjánssonar og Styrmis Gíslasonar Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hver yrði hún ?Hætta með rangstöðuna, þá yrði leikurinn hrikalega skemmtilegur
Erfiðasti útivöllurinn ?Malarvöllurinn á Siglufirði Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á Knattspyrnuleik ?Ég bara man það ekki
Hverjir eru eftirminnilegustu leikmennirnir frá þínum tíma með Tindastól ?Þeir eru margir, t.d. Ingi Björgvin Kristjánsson, Styrmir Gíslason, Víðir Kristjánsson, Ragnar Sigurbjörnsson og margir fleiri.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki frá tíma þínum með Tindastól ?Sumarið fræga 1996 vorum við í keppnisferð í Reykjavík og gistum eins og svo oft áður í UMFÍ heimilinu í Fellsmúla. Ég og hinn markmaðurinn í liðinu, Dagur nokkur Baldvinsson höfðum þann ósið að reykja mikið og reykti ég þetta sumar stóra London Docks vindla. Svo var það um kvöld að við vorum að fá okkur að reykja fyrir utan áður en við forum að sofa. Vindáttin þetta kvöld var þannig að reykurinn sem við blésum frá okkur fór beint inn um gluggann hjá Alla Munda þjálfara þar sem hann svaf værum svefni þangað til hann vaknaði með miklum andfælum þarsem blanda af sterkum vindla og sígarettureyk lagði inn í herbergið. Alli kom út frekar úrillur og var ekki sáttur við okkur og rak okkur beint inn að sofa enda leikur um hádegi daginn eftir.
Fylgdistu eitthvað með liði Tindastóls í fyrra ?Já ég fylgdist þónokkuð með þeim Hvernig list þér á komandi tímabil hjá Tindastól ?Mér list ekkert illa á tímabilið en þetta verður mjög erfitt hjá þeim. Á ekki að mæta á leiki í sumar hjá Stólunum ?Jú ég reyni
Eitthvað að lokum ?ÁFRAM TINDASTÓLL (og Skagamenn)
|
|
|
14:49 |
19. maí 2013 |
Tindastóll gerði 1-1 jafntefli gegn Völsung. Liðið er komið með tvö stig eftir tvo leiki. Næsti leikur er á fimmtudaginn gegn Þrótti, en sá leikur er sýndur í beinni á SportTV. |
StefanA |
|
09:41 |
15. maí 2013 |
5-1 sigur á Dalvík/ReyniTindastóll sigraði Dalvík/Reyni 5-1 í Boganum í gær. Um var að ræða leik í 2.umferð Borgunarbikarsins. Mörk okkar manna skoruðu Chris Tsonis (2) , Elvar Páll Sigurðsson, Steven Beattie og Atli Arnarson. Dregið verður í hádeginu í dag í 32.liða úrslitum. |
StefanA |
|
19:47 |
09. maí 2013 |
Lokatölur 1-11.umferðin hófst með leik Leiknis og Tindastólsmanna. Lokatölur 1-1 þar sem Elvar Páll Sigurðsson skoraði mark okkar manna. Fín frammistaða og vonandi að strákarnir byggi ofaná þetta fyrir næsta leik. |
omar |
|
13:51 |
08. maí 2013 |
Elvar Páll & Rodrigo MorinTindastóll hefur gengið frá samningum við tvo leikmenn fyrir komandi tímabil. Elvar Páll Sigurðsson kemur til Tindastóls á lánssamningi, Elvar er bróðir Arnars Sigurðssonar og mun því bætast enn í bræðrahópinn hjá Tindastól. Elvar spilaði á síðasta tímabili með ÍR. Rodrigo Morin er einnig gengin til liðs við Tindastól, en hann kemur úr Háskólanum West Texas A&M, það er einmitt sami skóli og Seb Furness kom frá. |
omar |
|
11:15 |
03. maí 2013 |
Völlurinn ekki í góðu ástandi nú í byrjun MaíNúna eru rétt rúmar tvær vikur í að flautað verður til leiks á Sauðárkróksvelli og bæjarprýðin lítur vægast sagt illa út. Mikill klaki lá á vellinum í langan tíma í vetur og fór klakinn ekki af vellinum fyrr en vinnuvélar voru búnar að brjóta hann af. Hvort þær aðgerðir fóru of seint af stað er erfitt að svara á þessum tímapunkti en ljóst er að við þurfum mikinn hlýindakafla, kraftaverk, nýtt gras... eða gervigras til að geta spilað á grænu grasi í byrjun móts. |
StefanA |
|
16:21 |
27. apr. 2013 |
Tindastóll spilar í nýjum búningi í sumarí kjölfar samninga sem Knattspyrnudeild Tindastóls gerði við JAKO á dögunum mun Tindastóll spila í nýjum búningum þetta keppnistímabilið. Stutt er í fyrsta leik tímabilsins og því ekki seinna vænna en að auglýsa nýja búningin. Ingvi Hrannar, Edvard Börkur og Bjarni Smári tóku sig til og útbjuggu auglýsingu til að kynna nýja búnigin, |
omar |
|
15:12 |
07. apr. 2013 |
Knattspyrnudeildin undirritar samning við JAKOÍ vikunni var undirritaður samstarfssamningur til fjögurra ára á milli Knattspyrnudeildar Tindastóls og JAKO. Tindastóll mun leika í JAKO búningum næstu fjögur árin og á það við alla flokka félagsins. |
omar |
|
13:07 |
07. apr. 2013 |
Tap hjá báðum liðumM.fl.karla og m.fl. kvenna töpuðu bæði leikjum sínum í gær 0-3. Leikur strákanna var að sögn mjög dapur og komust þeir aldrei inn í leikinn. Því fór sem fór. |
omar |
|
16:11 |
06. apr. 2013 |
Tveir leikir hjá Tindastóli í dagBáðir meistaraflokkarnir eiga leik í dag í Lengjubikarnum. Kl. 16:00 leika strákarnir í Reykjavík en mótherjinn er BÍ/Bolungarvík. Kl. 17:00 hefst leikur hjá stelpunum við Hött en sá leikur verður í Boganum á Akureyri. |
omar |
|
20:43 |
01. apr. 2013 |
Fékk leyfi frá VfL Bochum að leika þar í sumarfríi sínu.Knattspyrnumaðurinn Hólmar Eyjólfsson mun leika með Tindastóli í sumar í 1.deildinni. Samningar hafa náðst við félag hans VfL Bochum í Þýskalandi, en það var faðir hans Eyjólfur Sverrisson sem sá um þessa samninga fyrir Tindastól.
|
omar |
|
16:22 |
21. mars 2013 |
Allir þeir krakkar sem stundað hafa fótbolta með Tindastóli í vetur munu fá afhenta æfingaboli merkta félaginu á æfingatíma á morgun og laugardag. Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með því að krakkarnir mæti svo allir verði glaðir. |
omar |
|
21:56 |
17. mars 2013 |
Flottur leikur um helginaTindastóll spilaði gegn ÍBV í lengjubikarnum og með flottum leik komu strákarnir tvisvar til baka gegn Pepsi-deildarliðinu og úrslit leiksins 2-2. Flottur leikur og mjög skemmtilegur bolti sem var spilaður hjá strákunum í gær. Næsti leikur er á þriðjudaginn gegn Grindavík. |
StefanA |
|
21:48 |
10. mars 2013 |
4.flokkur karla4.flokkur karla tapaði úrslitaleik Greifamóts KA naumlega, en frammistaða drengjana var til fyrirmyndar. Tindastóll sendi til leiks eitt lið á Greifamóti - KA um helgina. Mótið er fyrir stráka í 4.flokku en það eru strákar fæddir 1999 og 2000 en yngri árgangurinn er að spila í fyrsta sinn á stórum velli...... |
StefanA |
|
09:59 |
08. mars 2013 |
genginn í raðir MagnaVarnarjaxlinn og grunnskólakennarinn Bjarki Már Árnason sem hefur leikið með liði Tindastóls undanfarin ár og liði Drangeyjar í fyrra hefur skipt yfir í Magna frá Grenivík sem leikur í 3.deild. |
omar |
|
13:16 |
25. feb. 2013 |
annar leikur í LengjubikarnumTindastoll mætti FH á laugardaginn sem leið. FH ingar voru töluvert mikið meira með boltann í leiknum en Tindastólsmenn spiluðu fantafínavörn allann leikinn og gerðu ógnarsterku liði FH mjög erfitt fyrir. Lokatölur leiksins hinsvegar 2-0 fyrir FH og er Tindastóll enn án stigi í A-deild Lengjubikarsins. |
StefanA |
|
22:54 |
23. feb. 2013 |
laugardaginn 2.mars kl. 11:00 í vallarhúsinu |
omar |
|
23:17 |
18. feb. 2013 |
TG9 með eina mark leiksinsTindastóll spilaði sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum þetta árið. Leikurinn endaði 1-0 fyrir Fylki þar sem Tryggvi Guðmundsson skoraði eina mark leiksins á 48.mín beint úr aukaspyrnu. Ágætis leikur hjá strákunum og með smá heppni hefðu þeir getað fengið eitthvað útúr þessum leik. Næsti leikur er á laugardaginn þegar við mætum Íslandsmeisturum FH í Akraneshöllinni |
omar |
|
06:31 |
13. feb. 2013 |
Alvöru byggðastefna í gangiTindastóll hefur gengið frá samningum við 11 leikmenn fyrir næsta sumar. 10 leikmenn skrifa undir til ársloka 2014 og einn til ársloka 2013. Gleðifréttir að svo margir skrifi undir í einu hjá félaginu og komi aftur heim í sumar. |
omar |
|
06:17 |
12. feb. 2013 |
Tindastóll spilar í A-riðliRiðlaskipting er klár fyrir keppni í 1. deild kvenna í sumar.
Leikin er tvöföld umferð áður en kemur fjögurra liða úrslitakeppni. Tindastóll er í A-riðli með Álftanes
BÍ/Bolungarvík , Fram , Fylkir , Haukar , ÍA , ÍR
og Víking Ó.
|
omar |
|
11:06 |
11. feb. 2013 |
Stelpurnar mæta Völsung - Strákarnir mæta Dalvík/Reyni eða Hömrunum. M.fl kvenna mætir Völsung í 2.umferð Borgunarbikarsins. Spilað verður á Sauðárkróksvelli 28.maí.
M.fl karla drógust gegn Dalvík/Reyni eða Hömrunum í 2.umferð bikarsins. Leikurinn verður spilaður á útivelli þrettánda eða fjórtánda Maí. Það má minnast þess að Tindastóll féll einmitt útúr bikarnum í fyrra gegn Dalvík/Reyni. |
omar |
|
|
|
|
SPJALLIĐ Taktu ţátt í spjallinu, segđu ţína skođun, leggđu eitthvađ til málanna. Skođa >>
       
|