|
|
Knattspyrnudeild | 11. apríl 2012 FélagaskiptiTheo og Max komnir yfir í TindastólTindastóll gekk frá félagaskiptum við tvo leikmenn nú um páskana. Fyrstan ber að nefna Theodore Eugene Furness, fæddan árið 1991. Hann er öllum hnútum kunnugur hérna á króknum en hann kom til okkar í lok júlí á síðasta tímabili og spilaði með okkur til lok móts. Theo reyndist okkur happa fengur og smell passaði inn í liðið.
Theo kemur þó ekki einn á krókinn að þessu sinni, en bræður hans. Sebastian og Dominic Furness munu einnig spila með okkur í sumar.
Í vetur er Theo búinn að spila með utandeildarliðinu Norton & Stockton á Englandi. En hann spilaði einnig Futsal með liði Middlesbrough. Theo kemur til landsins á föstudaginn kemur.
Hinn leikmaðurinn sem fékk félagaskipti nú um páskana heitir Max Touloute og kemur úr bandaríska háskólaboltanum. Max á ættir sínar að rekja til Haíti en hefur búið í Bandaríkjunum meira og minna síðustu 10 ár. Max er fæddur árið 1990 og hefur leikið með háskólaliðinu Indiana University-Purdue University undanfarin ár.
Max var sjöundi markahæsti leikmaður efstu deildar háskólaboltans. Max var einnig þriðji stigahæsti leikmaðurinn í þeirri deild í framlagi með 13 mörk og 9 stoðsendingar í 16 leikjum.
Hann er búinn að spila með liði Wichita Wings frá áramótum, en það lið keppir í MLS deildinni í innanhúsfótbolta. En sú deild er vinsælli þarna úti en við íslendingar búumst kannski við, því að meðaltali eru að koma um 5000 manns á leik og í úrslitakeppnninni eru allt að 8000 manns að mæta á leiki.
Max er væntanlegur til landsins í byrjun maí og bjóðum við þessa leikmenn auðvitað velkomna á Krókinn í sumar.
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||