|
|
Atli Arnarson skoraði fyrra mark Tindastóls í leiknum.
Guðni skoraði annað mark Tindastóls úndir lok leiksins. Knattspyrnudeild | 27. júlí 2010 M.fl.karlaTindastóll 2 - Skallagrímur 0Tindastóll var betra liðið í kvöld og var sigurinn sanngjarn. Þó var það þannig að gestirnir voru allan tímann inni í leiknum og það var ekki fyrr en á lokamínútunum að Tindastólsmenn tryggðu sér sigurinn með öðru marki sínu. Tindastólsliðið lék ágætlega en eins og áður átti það erfitt með að nýta færi sín og skora. Markvörður Skallagríms átti góðan leik og varði vel en þegar Atli Arnarson spyrnti boltanum í gegnum þvögu í markteignum fipaðist hann eitthvað og boltinn endaði í marki Skallagríms. Tindastóll sótti nokkuð eftir þetta mark en ekki urðu mörkin fleiri í fyrri hálfleik þrátt fyrir að Skallagrímsdrengir væru nálægt því að jafna. Í seinni hálfleik áttu gestirnir skot í þverslá en inn vildi boltinn ekki. Það var síðan rétt fyrir leikslok að Guðni skoraði annað mark Tindastóls og það urðu úrslit leiksins. Tindastóll tryggði sér sæti í úrslitakeppninni með þessum sigri en enn eru tveir leikir eftir. Tindastóll leikur næst við Létti í Reykjavík og svo síðasta leikinn fyrir úrslitakeppnina á Króknum þegar liðið tekur á móti Augnablik.
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||