Aðalfundur körfuknattleiksdeildar Tindastóls verður haldinn fimmtudaginn 9. september á skrifstofu félagsins að Víðigrund 5. Hefst hann kl. 20:30. Venjuleg aðalfundarstörf ásamt kosningu nýrrar stjórnar.
Unglingaráð stendur fyrir september-körfuboltahátíð á laugardaginn kemur í íþróttahúsinu á milli kl. 13 og 15. Settar verða upp körfuboltaþrautir, farið í leiki og að lokum verða grillaðar pylsur ofan í mannskapinn.
Septemberhátíð á laugardaginn milli kl. 13 og 15. - fréttabréf gefið út
Keppnistímabil körfuboltafólks hefst formlega í dag 1. september, þegar æfingar hefjast í þeim yngri flokkum sem þátt taka í Íslandsmótinu, en þeir verða níu talsins og hafa ekki verið svo margir um árabil.