|
|
Upplýsingar til aðkomuliða Akstursleiðir Fyrir þá sem koma suðurleiðina er styst að beygja inn á Skagastrandarafleggjarann þegar komið er framhjá Blönduósi og beygja síðan til hægri á Þverárfjallsveg sem einkenndur er með skilti sem á stendur Sauðárkrókur og kílómetrafjöldinn. Fyrir þá sem koma norðurleiðina, er ekið í Varmahlíð og afleggjarinn tekinn þar út á Krók. Íþróttahúsið Íþróttahúsið er staðsett við Skagfirðingabraut og er áfast Árskóla, sem er grunnskólinn á Sauðárkróki. Þeir sem koma yfir Þverárfjallið þurfa að aka sem leið liggur í gegn um bæinn, en þeir sem koma norðurleiðina koma fljótlega að íþróttahúsinu. Fyrir leikmenn meistaraflokka er bent á innkeyrslu bakdyramegin en þá er ekið inn á bílastæðið við skólann og sem leið liggur upp með honum og að bakdyrum íþróttahússins. Yngri flokkar koma venjulega inn í íþróttahúsið um aðalinngang og þá er beygt upp á milli fjölbrautaskólans og grunnskólans. Síminn í íþróttahúsinu er 453 5098. Gisting Þegar fjölliðamót eru haldin, gista liðin venjulega í Árskóla, sem er áfastur við íþróttahúsið og innangengt þar á milli. Panta þarf gistinguna fyrirfram og er síminn í skólanum 455 1100. Einnig eru gistiheimili og hótel í bænum. Mikligarður er gistiheimili sem gefur hópum sérstök tilboð í gistingu. Síminn þar er 453 6880 og netfangið mikligardur@mikligardur.is. Hótel Tindastóll er í sögufrægu húsi í gamla bænum. Síminn þar er 453 5002 og netfang sml@simnet.is. Matur Nokkrir veitingastaðir eru á Sauðárkróki og bjóða upp á ýmisskonar matseðla. Hard Wok Café, Aðalgata 8, sími 453 5355. Austurlenskur matur auk pizza og hamborgara. Orkustöðin Bláfell við Skagfirðingabraut - sími 453 6666 Sauðárkróksbakarí - 455 5000 N1 við Ártorg - sími 455 7071 Ólafshús - sími 453 6454 Kaffi Krókur - sími 453 6299 Verslanir Afþreying Hús frítímans - afþreyingar og frístundamiðstöð, Sæmundargötu 7b, sími 455-6109 Heilsugæsla og sjúkrahús Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki - sími 455 4000
|
Lokastaðan í deildinni 2012/2013
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||