|
|
Körfuboltadeild 1 | 05. júlí 2012 Uppfærðar upplýsingar um UnglingalandsmótiðUndirbúningur fyrir ULM að fara af staðÆfingar hefjast nú aftur á mánudaginn eftir sumarleyfi. Æfingar verða á sömu tímum og áður og nú hefst undirbúningur fyrir Unglingalandsmótið á Selfossi, en upplýsingar um það má finna hér fyrir neðan. Körfuknattleiksdeildin hefur mikinn áhuga á að senda vaska sveit drengja og stúlkna til keppni á Unglingalandsmótinu. Það hefur tíðkast að einstaka leikmenn hafi tekið sig saman í hóp og spilað saman óháð þátttöku UMSS/Tindastóls á mótinu. Unglingaráð gerir ekki athugasemdir við það, en vill þó að sem flest lið mæti undir merkjum UMSS og kostur er. Ef einhver skráir sig en ekki í gegn um unglingaráð er viðkomandi samt sem áður beðinn um að láta vita. Þjálfarar í sumarprógramminu, þeir Karl Jónsson og Hreinn Gunnar Birgisson, sem leysir Þröst Leó af hólmi fram að ULM, munu halda utan um skráningar þeirra krakka sem ætla á ULM og eru að mæta á sumaræfingarnar og ætla að keppa undir merkjum UMSS. Við bendum á að ef ekki næst í heilt lið, er hægt að skrá sig engu að síður og verður þá viðkomandi leikmanni eða leikmönnum, komið í lið með öðrum leikmönnum í sömu stöðu. Unglingalandsmótin eru frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna fyrir þá sem ekki eru með það á hreinu. Hérna fyrir neðan eru nánari upplýsingar um körfuboltakeppnina: Körfuknattleikur Sérgreinastjóri: Daði Steinn Arnarson 6901706/4834546 dadist@hveragerdi.is Við höfum takmarkaðan tíma í íþróttahúsi Iðu og verður leiktími leikja miðaður við þann tíma og fjölda liða. Staðsetning: Vallaskóli Nánari tímasetningar verða settar inn þegar skráningu er lokið. Stefnt er þó að því að byrja snemma á föstudagsmorgun og ljúka riðlakeppni seinnipart laugardags. Á sunnudag verði síðan spilaðir úrslitaleikir í hverjum flokki. Keppnisflokkar: Iða, 17-18 ára, 10. fl, strákar og stelpur Elstu flokkar spila í Iðu þvert á sal, þar spila 5-5 og leiktími er 2x10 mín. Spilað er á tveimur völlum í einu og eru allir leikir spilaðir til sigurs. Sigurvegarar riðils spila síðan til úrslita og liðin í öðru sæti spila um þriðja sætið. Séu fjórir riðlar þá er milliriðill þar sem er spilað þannig að efsta lið úr riðli A spilar við efsta lið úr riðli B, efsta lið í riðli C spilar við efsta lið úr riðli D. Leikið er til sigurs og spila sigurvegarar um fyrsta sætið en taplið um brons. Vallaskóli, 8. fl, mb, stelpur og strákar Yngri flokkar spila í Vallaskóla þar sem spilað er þvert á sal í riðlakeppni. Spilað er 5-5 og er leiktími 2x8 mín og klukka stoppar ekki, spilað er á tveimur völlum í einu og er sami leiktími fyrir alla velli. Sé stigaskor jafnt að loknum venjulegum leiktíma fær hvort lið eitt stig á meðan á riðlakeppni stendur. Sigurvegarar riðils spila síðan til úrslita og liðin í öðru sæti spila um þriðja sætið. Séu fjórir riðlar þá er milliriðill þar sem er spilað þannig að efsta lið úr riðli A spilar við efsta lið úr riðli B, efsta lið í riðli C spilar við efsta lið úr riðli D. Leikið er til sigurs og spila sigurvegarar um fyrsta sætið en taplið um brons. Sérreglur móts - Ef dæmd eru vítaskot skal aðeins taka eitt skot og gildir það sem tvö stig. Veitt eru verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í hverjum flokki Þeir sem ætla keppa á Unglingalandsmót UMFÍ þann 3-5 ágúst n.k. Þurfa að fara á slóðina http://skraning.umfi.is/index.php?out=1 en þar er hægt að skr Ef fólk þarf aðstoð við skráningu eða einhverjar upplýsingar er hægt að hafa samband á umss@simnet.is , í gegnum síma 4535460 eða koma við á skrifstofu okkar á Víðigrund 5. Einnig bendum við á að hægt er að lesa leiðbeningar um skráningu á slóðinni : http://www.umfi.is/umfi09/unglingalandsmot/keppni/?ew_news_onlyarea=&ew_news_onlyposition=12&cat_id=68005&ew_12_a_id=365175 Ungmennasambandið vonast til að sjá sem flesta á Unglingalandsmóti UMFÍ um verslunarmannahelgina 2012 Ungmennasambandið í Skagafirði |
Lokastaðan í deildinni 2012/2013
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||