|
|
Körfuboltadeild 1 | 29. apríl 2012 Sumaræfingatímabil hefst 1. maí
Sumaræfingatímabil körfuknattleiksdeildar hefst núna frá 1. maí og stendur út ágúst. Engin sérstök æfingagjöld verða innheimt, þar sem sumaræfingarnar voru innifaldar í æfingagjöld vorannar.
Æfingaplanið verður sem hér segir: Stúlkur 12 ára og eldri: mánudagar og miðvikudagar kl. 17 - 18.30, þjálfari verður Karl Jónsson. Drengir 12-15 ára: þriðjudagar og fimmtudagar kl. 17 - 18.30, þjálfari verður Þröstur Leó Jóhannsson. Drengir 16 ára og eldri æfa með meistaraflokki á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18.30 - 20.00. Æft verður með þessum hætti til 15. júní, en þá kemur þriggja vikna sumarfrí. Æfingar hefjast aftur eftir það 9. júlí og standa út ágúst, þegar hefðbundið keppnistímabil hefst. Stefnt er á góða þátttöku á unglingalandsmótinu um verslunarmannahelgina, sem í sumar verður haldið á Selfossi. Körfuknattleiksdeildin verður ekki með námskeið í Sumar TÍM. |
Lokastaðan í deildinni 2012/2013
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||