|
Vinstri dálkur |
![]() Körfuboltadeild 1 | 30. júní 2010 Axel til liðs við VærlöseAxel Kárason leikmaður úrvalsdeildarliðs Tindastóls, hefur ákveðið að ganga til liðs við nýliða Værlöse í efstu deild danska körfuboltans. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins. Axel hyggur á nám í Kaupmannahöfn og hefur um nokkurt skeið leitað að heppilegu liði til að spila með í Danmörku, með tilliti til staðsetningar og fleiri þátta sem skipta sveitamenn máli í stórborgum. Rúnar Birgir Gíslason umboðsmaður Axels kannaði markaðinn fyrir hann og eftir fund Axels með Jónasi Sörensen þjálfara Værlöse ákvað hann að ganga til liðs við þá. Körfuknattleiksdeildin þakkar Axel fyrir samstarfið í vetur og óskar honum alls hins besta í Danaveldi. Fyrir dönskusleipa má finna frekari upplýsingar á heimasíðu Værlöse. Síðan má sjá viðtal við Axel á karfan.is |
Staðan í deildinni 2009/2010
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||