|
|
Frjálsíţróttadeild | 06. febrúar 2012 Fjórir Íslandsmeistaratitlartil Skagfirðinga á MÍ 15-22
Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum, fyrir 15-22 ára, fór fram í Reykjavík helgina 4.-5. febrúar. Keppendur UMSS unnu 4 Íslandsmeistaratitla á mótinu og auk þess 4 silfur og 3 brons. Verðlaunahafar UMSS: Daníel Þórarinsson (18-19) sigraði í 200m, varð í 2. sæti í 60m og 800m. Jóhann Björn Sigurbjörnsson (16-17) sigraði í 60m hlaupi, varð 2. í 200m og 3. í hástökki. Ísak Óli Traustason (16-17) sigraði í hástökki, varð 3. Í 60m grindahlaupi. Halldór Örn Kristjánsson (20-22) sigraði í hástökki. Þorgerður Bettína Friðriksdóttir (16-17) varð í 2. sæti í 200m. Guðjón Ingimundarson (20-22) varð í 3. sæti í 60m grindahlaupi. Skagfirsku piltarnir í flokki 16-17 ára og ungkarlarnir, 20-22 ára, urðu í 3. sæti í stigakeppninni, en hópurinn allur hafnaði í 6. sæti af 19 liðum í samanlagðri stigakeppni mótsins.
Til hamingju !
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||