|
|
Frjálsíţróttadeild | 28. júlí 2010 Fjölmennum á ULM 2010í Borgarnesi
13. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Búist er við metaðsókn á mótið. Á síðasta ULM á Sauðárkróki voru keppendur 1500 og gestir í bænum um 12.000. Nú eru skráningar til keppni orðnar 1700 og því má búast við enn fleiri gestum, einkum með hliðsjón af nálægð við þéttbýlasta svæði landsins. Fyrsta Unglingalandsmótið var haldið á Dalvík 1992, að frumkvæði Jóns Sævars Þórðarsonar frjálsíþróttaþjálfara, sem þá starfaði þar. Hann hafði hvatt til þess að haldið yrði stórt unglingamót í íþróttum í líkingu við Landsmót UMFÍ, þar sem krakkar úr ólíkum greinum hittust. Þessi hugmynd lifði áfram og 2.ULM var haldið á Blönduósi 1995, og 3.ULM í Grafarvogi í Reykjavík 1998. Með 4.ULM, sem haldið var á Vestfjörðum, Patreksfirði, Bíldudal og Tálknafirði árið 2000, var mótið tengt verslunarmannahelginni fyrsta sinni. Það voru ekki margir sem trúðu á þá hugmynd UMFÍ, að fara í samkeppni við hefðbundnar “gleðihátíðir” verslunarmannahelgarinnar, en raunin hefur orðið önnur. Unglingalandsmótin hafa sannað gildi sitt sem skemmtileg, vímulaus fjölskylduhátíð fyrir alla, líka þá sem ekki finna sig sérstaklega í íþróttum. Þar er eitthvað fyrir alla. 12.ULM á Sauðárkróki 2009 sló öll fyrri met í fjölda þátttakenda og gesta. 1500 keppendur mættu til leiks og 12.000 manns fylgdu þeim í bæinn. Nú höfum við tækifæri til slá það met. FJÖLMENNUM Á ULM2010 í Borgarnesi, styðjum krakkana okkar í skemmtilegri keppni og eigum góðar stundir saman !
Allar upplýsingar um frjálsíþróttakeppnina verða HÉR !
Leiðbeinigar um mótssvæðið eru HÉR ! |
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||